Laugavegur 166

Verknúmer : BN041938

601. fundur 2010
Laugavegur 166, (fsp) stækka anddyri
Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka anddyri á húsnæði Fasteigna ríkissjóðs á lóð nr. 166 við Laugaveg og breyta fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 27. ágúst 2010 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður berist umsókn. Samþykki allra meðlóðarhafa fylgi umsókn.


315. fundur 2010
Laugavegur 166, (fsp) stækka anddyri
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. ágúst 2010 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að stækka anddyri á húsnæði Fasteigna ríkissjóðs á lóð nr. 166 við Laugaveg og breyta fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún. Athygli er vakin á því að samþykki allra meðlóðarhafa þarf að fylgja með byggingarleyfisumsókn.

600. fundur 2010
Laugavegur 166, (fsp) stækka anddyri
Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka anddyri á húsnæði Fasteigna ríkissjóðs á lóð nr. 166 við Laugaveg og breyta fyrirkomulagi bílastæða á lóðinni.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.