Urðarbrunnur 130-134 og Skyggnisbraut 20-30

Verknúmer : BN041927

599. fundur 2010
Urðarbrunnur 130-134 og Skyggnisbraut 20-30, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að skipta lóðinni Urðarbrunnur 130 til 134 og Skyggnisbraut 20 til 30, landnúmer 206139, stærð 10917 ferm., upp í þrjár lóðir eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 16. ágúst 2010.
Við breytinguna verða til þrjár nýjar lóðir: Urðarbrunnur 130-134, landnúmer 206139, stærð 2746 ferm., Skyggnisbraut 20-24, landnúmer 219632, stærð 4793 ferm. og Skyggnisbraut 26-30, landnúmer 219633, stærð 3379 ferm. Samanber samþykkt embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra 16. júlí 2010 og samþykkt borgarráðs 20. maí 2010.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.