Klapparstígur 17

Verknúmer : BN041911

601. fundur 2010
Klapparstígur 17, staðsteypt hús
Sótt er um leyfi til að breyta byggingaraðferð, sjá erindi BN041158, úr forsteyptum einingum í staðsteypu í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


599. fundur 2010
Klapparstígur 17, staðsteypt hús
Sótt er um leyfi til að breyta byggingaraðferð, sjá erindi BN041158 úr forsteyptum einingum í staðsteypu, fjölbýlishússins á lóð nr. 17 við Klapparstíg.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.