Sæviðarsund 21-25

Verknúmer : BN041903

601. fundur 2010
Sæviðarsund 21-25, nr. 21 reyndarteikningar
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna gerðar skráningartöflu fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 21 við Sæviðarsund.
Bréf frá hönnuði dags. 9. ágúst og 26. ágúst 2010 og bréf frá hönnuði dags. 30. ágúst. 2010 þar sem skýrðar eru eign umsækjanda.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


599. fundur 2010
Sæviðarsund 21-25, nr. 21 reyndarteikningar
Sótt er um samþykki á reyndarteikningum vegna gerðar skráningartöflu fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 21 við Sæviðarsund.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.