Laugavegur 46B

Verknúmer : BN041722

592. fundur 2010
Laugavegur 46B, endurnýjun (bn039644)
Sótt er um endurnýjun á erindi BN039644, sem felst í að skipta einbýlishúsi í tvær íbúðareiningar með sameiginlegri lóð, setja kvist á þakflöt í norður og skipta um bárujárnsklæðningu á íbúðarhúsi á lóð nr. 46B við Laugaveg.
Stærðir: Kjallari 52,9 ferm., íbúð 01, 1. hæð 52,5 ferm., 2. hæð 35,7 ferm., samt. 88,2 ferm., íbúð 02, 34,1 ferm.,
Samtals allt húsið: 175,2 ferm., 476,6 rúmm.
Stækkun 8,36 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 644
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.