Tómasarhagi 17

Verknúmer : BN041674

591. fundur 2010
Tómasarhagi 17, endurnýjun byggingarleyfis BN038016
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis BN038016 dags. 22.4. 2008, sem felst í stækkun á núverandi sólskála við enda bílgeymslu fjöleignahússins á lóðinni nr. 17 við Tómasarhaga.
Stærð stækkunar 23,8 ferm. 55,3 rúmm. Meðfylgandi er samþykki meðeiganda dags. 14. janúar 2008.
Gjald kr. 7.700 + 4.258
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.