Grandagarður 8

Verknúmer : BN041640

589. fundur 2010
Grandagarður 8, Handrið
Sótt er um leyfi til að setja handrið á útivistarbryggjur austan lóðar Sjóminjasafns á lóð nr. 8 við Grandagarð og meðfram uppsátri Gullborgar í "Daníelsslipp".
Meðfylgjandi er bréf Faxaflóahafna dags. 26. maí 2010 og grunnmyndir og sérhlutamyndir af handriðum
Bókun byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við frágang og uppsetningu handriða á svæðinu. Fyrirhuguð handrið eru í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Svæðið er hafnarsvæði utan skilgreindrar lóðar.