Stekkjarbakki 4-6

Verknúmer : BN041621

589. fundur 2010
Stekkjarbakki 4-6, veitingahús
Sótt er um leyfi til að innrétta 120 gesta veitingasal fyrir veitingar í fl. II með framleiðslueldhúsi og afgreiðslu og hvíldaraðstöðu starfsfólks í mhl. 02 á þegar byggðum millipalli í versluninni Garðheimum á lóð nr. 4-6 við Stekkjarbakka.
Jafnframt er umsókn um ofangreinda þjónustu dregin út úr erindi BN041562 svo þar stendur bara eftir umsókn um geymslugám.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.