Tryggvagata 10

Verknúmer : BN041514

586. fundur 2010
Tryggvagata 10, (fsp) niðurrif og endurbygging
Spurt er hvort rífa megi núverandi hús og byggja annað í sem næst sömu mynd skv. gildandi skipulagsákvæðum á lóð nr. 10 við Tryggvagötu.
Meðfylgjandi er bréf Húsafriðunarnefndar dags. 9. nóv. 2009
Vísað er til bókunar skipulagsráðs Reykjavíkur frá 16. desember 2009 en þar segir: Skipulagsráð leggst ekki gegn niðurrifi á húsinu nr. 10 við Tryggvagötu en gerir það að skilyrði að áður liggi fyrir samþykktir aðaluppdrættir af nýbyggingu á lóðinni ásamt tímaáætlun framkvæmdanna.