Bergstaðastræti 67

Verknúmer : BN041501

206. fundur 2010
Bergstaðastræti 67, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 10. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eigendum Bergstaðstrætis 67 þrjátíu daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu nr. 67 við Bergstaðastræti. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga byggingarfulltrúa samkvæmt framlögðu bréfi er samþykkt.