Hjallavegur 30

Verknúmer : BN041498

206. fundur 2010
Hjallavegur 30, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 11. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eiganda Hjallavegar 30 þrjátíu daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu nr. 30 við Hjallaveg. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga byggingarfulltrúa samkvæmt framlögðu bréfi er samþykkt.