Freyjugata 36

Verknúmer : BN041497

206. fundur 2010
Freyjugata 36, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 18. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eigendum Freyjugötu 36 þrjátíu daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu nr. 36 við Freyjugötu. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga byggingarfulltrúa samkvæmt framlögðu bréfi er samþykkt.