Sigtún 38

Verknúmer : BN041496

206. fundur 2010
Sigtún 38, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 12. mars 2010, en í bréfinu er gerð tillaga um að gefa eiganda Sigtún 38 þrjátíu daga tímafrest að viðlögðum dagsektum kr. 5.000 til þess að leggja fram eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu nr. 38 við Sigtún. Ekki hafa borist athugasemdir frá lóðarhafa á þeim tíma sem veittur var til andmæla.
Tillaga byggingarfulltrúa samkvæmt framlögðu bréfi er samþykkt.