Vesturhólar 9-15

Verknúmer : BN041311

581. fundur 2010
Vesturhólar 9-15, nr. 11 breytingar á BN034799
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu skýli, sjá erindi BN040574 dags. 27. október 2009, og byggja burðargrind úr timbri í stað stáls við einbýlishúsið nr. 11 á lóð nr. 9-15 við Vesturhóla.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.