Framnesvegur 14

Verknúmer : BN040952

574. fundur 2010
Framnesvegur 14, (fsp) kvistur og svalir
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðurhlið og á norðurhlið sem jafnframt er komið fyrir þaksvölum með útsýni yfir Faxaflóann í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Framnesveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. febrúar 2010 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. febrúar 2010.
Jákvætt.
Enda láti fyrirspyrjandi vinna á eigin kostnað breytingu á deiliskipulagi sem grenndarkynnt verðu berist hún. Jafnframt er vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði og vakin athygli á að verði deiliskipulagsbreyting samþykkt ber að sækja um byggingarleyfi.


290. fundur 2010
Framnesvegur 14, (fsp) kvistur og svalir
Á fundi skipulagsstjóra 29. janúar 2010 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. janúar 2010 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðurhlið og á norðurhlið sem jafnframt er komið fyrir þaksvölum í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Framnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra, dags.3. febrúar 2010.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi með þeim fyrirvörum og skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.


289. fundur 2010
Framnesvegur 14, (fsp) kvistur og svalir
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. jan. 2010. Spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðurhlið og á norðurhlið sem jafnframt er komið fyrir þaksvölum með útsýni yfir Faxaflóann í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Framnesveg.
Vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

572. fundur 2010
Framnesvegur 14, (fsp) kvistur og svalir
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðurhlið og á norðurhlið sem jafnframt er komið fyrir þaksvölum með útsýni yfir Faxaflóann í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Framnesveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.