Meistaravellir 19-23

Verknúmer : BN040869

575. fundur 2010
Meistaravellir 19-23, innri og ytri endurbætur
Sótt er um leyfi til gagngerra breytinga innanhúss og utan, skipta um lagnir, innréttingar, glugga og klæða gafla og setja nýja glugga á þá og koma fyrir lyftu í stigahúsi nr. 19 (mhl. 01) í fjölbýlishúsi á lóð nr. 19-23 við Meistaravelli.
Meðfylgjandi er úttekt frá Aðgengi ehf. dags. 21. des. 2009, bréf frá Sjálfsbjörgu dags. 21. des. 2009, Brunnahönnunarskýrsla Línuhönnunar dags. 15. maí 2007 og endurskoðuð Brunahönnunarskýrsla Eflu dags. 14. jan. 2010 ásamt bréfi Eflu dags. 5. febrúar 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um eignarhald fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


570. fundur 2010
Meistaravellir 19-23, innri og ytri endurbætur
Sótt er um leyfi til gagngerra breytinga innanhúss og utan-, skipta um lagnir, innréttingar, glugga og klæða gafla og setja nýja glugga á þá og koma fyrir lyftu í stigahúsi nr. 19 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 19-23 við Meistaravelli.
Meðfylgjandi er úttekt frá Aðgengi ehf. dags. 21. des. 2009, bréf frá Sjálfsbjörgu dags. 21. des. 2009, Brunnahönnunarskýrsla Línuhönnunar dags. 15. maí 2007.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.