Laufásvegur 74

Verknúmer : BN040853

569. fundur 2009
Laufásvegur 74, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta mörkum lóðanna Laufásvegur 74 (Landnr. 102733) og Hringbraut/Smáragata, gróðrarstöðvarlóð (Landnr. 102735), eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar
dags. 11. 12. 2009. Lóðin Laufásvegur 74 er eignarlóð og lóðin Hringbraut/Smáragata, gróðrarstvöðvarlóð er leigulóð.
Við breytinguna stækka lóðin Laufásvegur 74 úr 777 ferm í 1119 ferm, þar af 777 ferm eignalóð og 341 ferm leigulóð.
Lóðin Hringbraut/Smáragata, gróðrarstöðvarlóð minnkar úr 575 ferm í 162 ferm. Þar af fara 341 ferm undir Laufásveg 74 og 72 ferm undir óútvísað svæði borgarinnar (Landnr. 218177).
Samþykki eiganda Laufásvegur 74 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.