Reykás 1-11

Verknúmer : BN040747

601. fundur 2010
Reykás 1-11, viðbygging og stækkun glugga
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á 1. hæð sem kemur undir svalir og stækkun glugga á norðvesturhorni raðhússins nr. 11 á lóð nr. 1 til 11 við Reykás.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. des. 2009 fylgir erindinu.
Samþykki meðlóðarhafa ódags. og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 26. ágúst 2010.
Stækkun: 5,6 ferm. og 15,12 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 1.164
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


">567. fundur 2009
Reykás 1-11, viðbygging og stækkun glugga
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á 1. hæð sem kemur undir svalir og stækkun glugga á norðvesturhorni raðhússins nr. 11 á lóð nr. 1 til 11 við Reykás.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. des. 2009 fylgir erindinu.
Stækkun: ?? ferm. og ?? rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ??
Frestað.
Vísað til útskriftar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 og athugasemda á umsóknarblaði.


283. fundur 2009
Reykás 1-11, viðbygging og stækkun glugga
Lagt fram erindi frá afgeiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. desember 2009 þar sem sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á 1. hæð sem kemur undir svalir og stækkun glugga á norðvesturhorni raðhússins nr. 11 á lóð nr. 1 til 11 við Reykás.
Stækkun: ?? ferm. og ?? rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ??
Frestað.
Umsóknin samræmist ekki ákvæðum gildandi deiliskipulags. Lagfæra þarf uppdrætti á þann hátt að bygging standi innan byggingarreits. Athygli er vakin á því að samþykki meðlóðarhafa þarf að liggja fyrir áður en unnt er að samþykkja erindið.


566. fundur 2009
Reykás 1-11, viðbygging og stækkun glugga
Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu á 1. hæð sem kemur undir svalir og stækkun glugga á norðvesturhorni raðhússins nr. 11 á lóð nr. 1 til 11 við Reykás.
Stækkun: ?? ferm. og ?? rúmm.
Gjald kr. 7.700 + ??
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.