Skildingatangi 1

Verknúmer : BN040724

567. fundur 2009
Skildingatangi 1, (fsp) bílastæði, rampi á lóð
Spurt er hvort leyft yrði að staðsetja bílastæði og niðurkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af einbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 4. desember 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.


283. fundur 2009
Skildingatangi 1, (fsp) bílastæði, rampi á lóð
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. desember 2009 þar sem spurt er hvort leyft yrði að staðsetja bílastæði og niðurkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af einbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi svæðisins.

566. fundur 2009
Skildingatangi 1, (fsp) bílastæði, rampi á lóð
Spurt er hvort leyft yrði að staðsetja bílastæði og niðurkeyrslu í bílgeymslu eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdráttum af einbýlishúsinu á lóð nr. 1 við Skildingatanga.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.