Tryggvagata 16

Verknúmer : BN040657

564. fundur 2009
Tryggvagata 16, (fsp) breyta 4. hæð i gistiheimili
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili eða litlar íbúðir á 4. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. nóvember 2009 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að skipulagsástæðum, vegna íbúða getur þurft að fjölga bílastæðum verði þær umfram kröfu um 1 bílastæði á hverja 50 ferm. Vísað er til athugasemda eldvarnaeftirlits á fyrirspurnarblaði. Sækja þarf um byggingarleyfi.


281. fundur 2009
Tryggvagata 16, (fsp) breyta 4. hæð i gistiheimili
Á fundi skipulagsstjóra 13. nóvember 2009 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2009 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili eða litlar íbúðir á 4. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Tryggvagötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist landnotkun samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur.

280. fundur 2009
Tryggvagata 16, (fsp) breyta 4. hæð i gistiheimili
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2009 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili eða litlar íbúðir á 4. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins.

562. fundur 2009
Tryggvagata 16, (fsp) breyta 4. hæð i gistiheimili
Spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiheimili eða litlar íbúðir á 4. hæð atvinnuhússins á lóð nr. 16 við Tryggvagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.