Mímisvegur 6

Verknúmer : BN040645

570. fundur 2010
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30. september 2009 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. janúar 2010. Grenndarkynning stóð yfir frá 4. desember 2009 til og með 1. janúar 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


286. fundur 2010
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. desember 2009 þar sem sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg. Grenndarkynning stóð yfir frá 4. desember 2009 til og með 1. janúar 2010. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30. september 2009.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


567. fundur 2009
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 30. september 2009.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Samþykki meðeigenda vísað til skipulagsstjóra til að unnt sé að grenndarkynna málið.


280. fundur 2009
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2009 þar sem sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg.
Erindi fylgir samþykki eins meðlóðarhafa dags. 30. september 2009.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Mímisvegi 4 og 8 ásamt Barónsstíg 78 og 80, þegar samþykki meðlóðarhafa hefur verið lagt fram.

562. fundur 2009
Mímisvegur 6, lyfta þaki
Sótt er um leyfi til að lyfta þaki og byggja kvisti og koma fyrir svölum á austurálmu íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Mímisveg.
Erindi fylgir samþykki eins meðlóðarhafa dags. 30. september 2009.
Stækkun: 53 ferm., 223,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 4.081
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 1001-1002 dags. 20. okt. 2009