Fróðengi 1-11

Verknúmer : BN040613

561. fundur 2009
Fróðengi 1-11, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir 2. og jafnframt síðari áfanga reyndarteikninga af öryggis- og þjónustuhúsi á lóð nr. 1-11 við Fróðengi.
Helstu breytingar frá samþykktum teikningum eru þessar: Gluggar breytast á göngum, anddyri stækkuð og rennihurðir verða í ytri hurðum, sorphurðir og hurðir af göngum 1. hæðar lækkaðar, breyttir gluggar í þvottahúsum, reyklosun úr efsta glugga stigahúss verði minnst 1 ferm., læst álklæðning verður slétt og lokun inn í hjóla- og vagnageymslu fellur út.
Stækkun: 1 ferm., 1,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 108
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.