Ægisgarður 1

Verknúmer : BN040483

558. fundur 2009
Ægisgarður 1, mæliblað
Faxaflóahafnir sf. sækja um leyfi til breytinga og minnkunar lóðarinnar Ægisgarðs 1-3, staðgr. 1.116.402, landnr. 100073. Lóðin er samkvæmt fasteignaskrá 7.900 ferm, tekið undir götur og hafnarsvæði 1.778 ferm, verður skráð með óútvísuðu landi Faxaflóahafna. Minnkuð lóð verður því 6.122 ferm. Skráning lóðarinnar verður Ægisgarður 1-3.
Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna sf. dags. 8. september 2009 ásamt lóðarblaði dags. 7. september 2009 og þrem fylgiskjölum A3 dags. 7. september 2009, minnkuð afrit af mæliblöðum frá í apríl 1991 og október 2001, ásamt tölvubréfi Faxaflóahafna dags. 28. september 2009.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


556. fundur 2009
Ægisgarður 1, mæliblað
Faxaflóahafnir sf. sækja um leyfi til breytinga og minnkunar lóðarinnar Ægisgarðs 1-3, staðgr. 1.116.402, landnr. 100073. Lóðin er nú 6.742 ferm, tekið undir götur og hafnarsvæði 620 ferm, verður skráð með óútvísuðu landi Faxaflóahafna. Minnkuð lóð verður því 6.122 ferm. Önnur skráning óbreytt.
Málinu fylgir bréf Faxaflóahafna sf. dags. 8. september 2009 ásamt lóðarblaði dags. 7. september 2009 og þrem fylgiskjölum A3 dags. 7. september 2009.

Frestað.