Sólvallagata 67, Vesturvallag.10 og 12, Hringbraut 116-118

Verknúmer : BN040479

556. fundur 2009
Sólvallagata 67, Vesturvallag.10 og 12, Hringbraut 116-118, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðanna Sólvallagötu 67, Vesturvallagötu 10 og 12, og Hringbraut 116 og 118 eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti Landupplýsingadeildar dags. 22. september 2009. Breytingin fellst í því að lóðirnar Vesturvallagata 10 og 12 og Hringbraut 116 og 118 verði allar sameinaðar Sólvallagötu 67 og hverfi úr skrám.
Við breytinguna stækkar lóðin Sólvallagata 67 úr 6092 ferm í 7042 ferm, lóðin Hringbraut 116 er 241 ferm og hverfi, lóðin Hringbraut 118 er 255 ferm og hverfi, lóðin Vesturvallagata 10 er 227 ferm og hverfi og lóðin Vesturvallagata 12 er 226 ferm og hverfi.
Samanber deiliskipulag sem samþykkt var í skipulagsráði 9. apríl 2008 og í borgarráði 17. apríl 2008. Auglýsing um gildistöku á þessu deiliskipulagi birtist í B-deild stjórnartíðinda 8. júlí 2008.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.