Hlíðarfótur 7

Verknúmer : BN040459

556. fundur 2009
Hlíðarfótur 7, nýir aðaluppdrættir
Sótt er um breytingar frá nýsamþykktu erindi BN040071 er varðar frágang lóðar og hljóðdempandi loftun kennslurýmis í skóla Hjallastefnunar á lóð nr. 7 við Hlíðarfót.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar dags. 21. sept. 2009 og ný teikningaskrá.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.