Blönduhlíð 9

Verknúmer : BN040455

556. fundur 2009
Blönduhlíð 9, (fsp) breytingar á svölum
Spurt er hvort leyfi fengist til að brjóta ónýtar svalir niður og byggja þær upp aftur með smávægilegum breytingum sem eru að breikka þær um 15 cm. og í staðinn fyrir steypt handrið verði komið fyrir léttri grind klædd með plexigleri á fjölbýlishúsinu á lóð nr. 9 við Blönduhlíð.
Bréf frá eigendum með myndum og skýringum ódagsett og jákvæð og neikvæð fyrirspurn BN040323 dags. 25. ágúst 2009 fylgir erindinu.
Afgreitt.
Jákvætt að brjóta niður svalir og breikka þær um 15 cm.
Útfærsla á handriði úr plexigleri er ekki ásættnleg lausn.
Sækja verður um bygginarleyfi sem samþykki meðeiganda fylgir.