Laugavegur 143

Verknúmer : BN040440

184. fundur 2009
Laugavegur 143, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram afrit af bréfi byggingarfulltrúa frá 24. ágúst 2009 til hluta eigenda á Laugavegi 143.
Í bréfinu er lagt til að gefnir verði tímafrestir að viðlögðum dagsektum til þess að láta af óleyfisbúsetu og fjarlægja innréttingar og óleyfishólfanir í húsinu nr. 143 við Laugaveg. Málsaðilar hafa ekki nýtt sér andmælarétt.

Bréf byggingarfulltrúa samþykkt