Austurstr. 22, Lækjargata 2 og 2A

Verknúmer : BN040436

554. fundur 2009
Austurstr. 22, Lækjargata 2 og 2A, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðanna Austurstræti 22, Lækjargata 2 og Lækjargata 2A og sameina lóðirnar Austurstræti 22 og Lækjargötu 2, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 14. september 2009. Stærð lóðarinnar Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 verður 846 ferm og lóðin Lækjargata 2A verður 501 ferm.
Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í skipulagsráði 24. júní 2009 og í borgarráði 2. júlí 2009 og var birt í B-deild Stjórnartíðinda 11. ágúst 2009.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðarmarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsing um breytt lóðarmörk.