Í Úlfarsárlandi 123800/Úlfarsfell

Verknúmer : BN040419

554. fundur 2009
Í Úlfarsárlandi 123800/Úlfarsfell, stöðuleyfi fyrir fjarskiptahýsil
Sótt er um stöðuleyfi til tveggja ára fyrir fjarskiptahýsil á toppi Úlfarsfells.
Meðfylgjandi er bréf umsækjanda dags. 9.september 2009, útskrift úr gerðabók skipulagsráðs dags. 2. september 2009, afgreiðsla skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar dags. 18. ágúst 2009, ódags. tölvubréf skipulagsstjóra, loftmynd með afstöðu og teikning.
Gjald kr 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Stöðuleyfi er gefið til tveggja ára. Í því fellst ekkert fyrirheit um lóðaafmörkun eða framtíðarstöðuleyfi vegna búnaðarins.
Þinglýsa skal yfirlýsingu þess efnis.