Kaldasel 17

Verknúmer : BN040413

556. fundur 2009
Kaldasel 17, breyta útliti glugga, svalahurð
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum og bæta við svalahurð á suðaustur hlið og koma fyrir þakglugga vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 17 við Kaldasel.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 23. sept. 2009 fylgir erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


555. fundur 2009
Kaldasel 17, breyta útliti glugga, svalahurð
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum og bæta við svalarhurð á suðaustur hlið og koma fyrir þakglugga vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 17 við Kaldasel.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.