Vesturgata 21

Verknúmer : BN040408

557. fundur 2009
Vesturgata 21, tveir kvistar og br. gluggar
Sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti á suðurhlið og til að stækka og breyta í franskar svalir glugga á gafli einbýlishússins á lóð nr. 21 við Vesturgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 2. október 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. október 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 28. september 2009 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 2. október 2009.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Lagfæra verður uppdrætti í samræmi við umsagnir skipulagsstjóra og Minjaverndar.
Að því uppfylltu verður málið sent skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu.


274. fundur 2009
Vesturgata 21, tveir kvistar og br. gluggar
Á fundi skipulagstjóra 18. september 2009 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. september 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti á suðurhlið og til að stækka og breyta í franskar svalir glugga á gafli einbýlishússins á lóð nr. 21 við Vesturgötu. Erindinu var vísað til umfjöllunar hjá verkefnastjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 2. október 2009. Einnig er lögð fram umsögn Húsafriðundarnefndar dags. 28. september 2009.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Erindið verður grenndarkynnt þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.


272. fundur 2009
Vesturgata 21, tveir kvistar og br. gluggar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. september 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti á suðurhlið og til að stækka og breyta í franskar svalir glugga á gafli einbýlishússins á lóð nr. 21 við Vesturgötu.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Vísað til umfjöllunar hjá verkefnastjóra svæðisins.
Athygli er vakin á því að umsagnir Húsafriðunarnefndar ríkisins og Minjasafns Reykjavíkur skulu fylgja umsókninni.


554. fundur 2009
Vesturgata 21, tveir kvistar og br. gluggar
Sótt er um leyfi til að byggja tvo kvisti á suðurhlið og til að stækka og breyta í franskar svalir glugga á gafli einbýlishússins á lóð nr. 21 við Vesturgötu.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 7.700 + xx
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.