Almannadalur 9-15

Verknúmer : BN040376

557. fundur 2009
Almannadalur 9-15, nr. 13 breyting inni og tilfærsla á hurðum utanhúss
Sótt er um leyfi til að spegla á lóð, breyta innra fyrirkomulagi og útliti á hesthúsi nr. 13, sjá BN035694 dags. 5. júní 2007, á lóðinni nr. 9-15 í Almannadal.
Erindi fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa áritað á uppdrátt og bréf hönnuðar dags. 1. október 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


553. fundur 2009
Almannadalur 9-15, nr. 13 breyting inni og tilfærsla á hurðum utanhúss
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og útliti á hesthúsi nr. 13 á lóðinni nr. 9-15 í Almannadal.
Erindi fylgir samþykki sumra meðlóðarhafa áritað á uppdrátt.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.