Miðhús 44

Verknúmer : BN040279

550. fundur 2009
Miðhús 44, endurnýjun á BN035846
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfið BN035846 dags. 26. júní 2007, þar sem veitt var leyfi til að grafa út sökkla, byggja sólstofu við jarðhæð, byggja yfir svalir á 2. hæð, afmarka sérnotaflöt á lóð og breyta innra skipulagi og útliti tvíbýlishússins á lóðinni nr. 44 við Miðhús.
Stækkun: 80,0 ferm., og 327,4 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 25.210
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.