Eyjarslóð 7

Verknúmer : BN040204

549. fundur 2009
Eyjarslóð 7, reyndarteikningar og breytingar
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og til að útbúa nýja aðkomu að 2. hæð eignarhluta 0201 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 7 við Eyjarslóð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


265. fundur 2009
Eyjarslóð 7, reyndarteikningar og breytingar
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. júlí 2009. Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og til að útbúa nýja aðkomu að 2. hæð eignarhluta 0201 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 7 við Eyjarslóð.
Gjald kr. 7.700
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

548. fundur 2009
Eyjarslóð 7, reyndarteikningar og breytingar
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og til að útbúa nýja aðkomu að 2. hæð eignarhluta 0201 í atvinnuhúsinu á lóð nr. 7 við Eyjarslóð.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.