Borgartún 6

Verknúmer : BN040099

544. fundur 2009
Borgartún 6, sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum innanhúss breytingum á kjallara, 1. hæð og 3. hæð. sem fela í sér að koma fyrir samkomusal, skrifstofurými, snyrtistofu og leiðréttingar á danssölum í atvinnuhúsi á lóð nr. 6 við Borgartún.
Bréf frá hönnuði dags. 22. júní 2009 fylgir erindinu.
Brunahönnuðarskýrsla dags 20. júlí 2009 fylgir erindinu
Gjald kr. 7.700

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.