Ármúli 32

Verknúmer : BN040063

547. fundur 2009
Ármúli 32, breyting á 1. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 1. hæðar með því að opna á milli verslunarrýma í verslunarhúsinu á lóð nr. 32 við Ármúla.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 14. júlí 2009 og bréf frá hönnuði dags. 13. júlí 2009 fylgja erindinu.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.


543. fundur 2009
Ármúli 32, breyting á 1. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 1.hæðar með að gera opna á milli verslunarrýmis á verslunarhúsinu á lóð nr. 32 við Ármúla.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.