Austurstræti 22

Verknúmer : BN039967

539. fundur 2009
Austurstræti 22, takmarkað byggingarleyfi f/stálþili
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að reka niður stálþil með lóðamörkum Austurstrætis 20, Austurstrætis 22 og Lækjargötu 2, vinna jarðvinnu og steypu á botnplötu. Jafnframt er sótt um leyfi til þess að reisa plötuklædda trégirðingu á gangstétt Lækjargötu 2 og Austurstrætis 22.
Auk uppdrátta fylgir málinu bréf arkitekta dags. 20. maí 2009 og Framkvæmdaheimild nr. 200905120 dags. 25. maí 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.