Dvergshöfði 27

Verknúmer : BN039957

256. fundur 2009
Dvergshöfði 27, stækkun á lóð, breytingar inni og úti
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2009 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðri hurð, áður gerðum stoðvegg og áður gerðri yfirbyggingu svala á norðurhlið og til lóðarstækkunar til að mannvirki þessi rúmist innan lóðar. Einnig er sótt um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, fjölga inngöngum á suðurhlið og til að fjölga eignum í atvinnuhúsinu á lóð nr. 27 við Dvergshöfða.
Jafnframt er erindi BN038160 dregið til baka.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 12. maí 2009 og byggingasaga húss dags. 23. febrúar 2009.
Gjald kr. 7.700


539. fundur 2009
Dvergshöfði 27, stækkun á lóð, breytingar inni og úti
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri hurð, áður gerðum stoðvegg og áður gerðri yfirbyggingu svala á norðurhlið og til lóðarstækkunar til að mannvirki þessi rúmist innan lóðar. Einnig er sótt um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, fjölga inngöngum á suðurhlið og til að fjölga eignum í atvinnuhúsinu á lóð nr. 27 við Dvergshöfða.
Jafnframt er erindi BN038160 dregið til baka.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 12. maí 2009 og byggingasaga húss dags. 23. febrúar 2009.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra vegna lóðarstækkunar.