Laugavegur 32

Verknúmer : BN039906

175. fundur 2009
Laugavegur 32, (fsp) kaffihús/bar fl.2
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2009 þar sem spurt er hvort opna megi kaffihús/bar í fl. II í húsnæði sem áður hýsti verslunina Noland á jarðhæð í húsi á lóð nr. 32 við Laugaveg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 25. maí 2009.

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Útgáfa byggingaleyfis skal þó háð því skilyrði að tryggt sé að veitingastarfssemi verði starfrækt á daginn auk þess sem tryggt verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt m.a. með því að byrgja fyrir glugga. Yfirlýsingu um þetta skal þinglýst á lóðina nr. 32 við Laugaveg.


538. fundur 2009
Laugavegur 32, (fsp) kaffihús/bar fl.2
Spurt er hvort opna megi kaffihús/bar í fl. II í húsnæði sem áður hýsti verslunina Noland á jarðhæð í húsi á lóð nr. 32 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.