Laugavegur 51

Verknúmer : BN039866

175. fundur 2009
Laugavegur 51, (fsp) kaffihús fl. III
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2009 þar sem spurt er hvort samþykkt verði að innrétta kaffihús með opnunartíma 07-23 virka daga og 07-01í rými 0102 í húsi á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 25. maí 2009.

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Útgáfa byggingaleyfis skal þó háð því skilyrði að tryggt sé að veitingastarfssemi verði starfrækt á daginn auk þess sem tryggt verði að útliti hússins verði ekki breytt á neinn hátt m.a. með því að byrgja fyrir glugga. Yfirlýsingu um þetta skal þinglýst á lóðina nr. 51 við Laugaveg.


538. fundur 2009
Laugavegur 51, (fsp) kaffihús fl. III
Spurt er hvort samþykkt verði að innrétta kaffihús með opnunartíma 07-23 virka daga og 07-01í rými 0102 í húsi á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.