Blönduhlíð 9

Verknúmer : BN039742

537. fundur 2009
Blönduhlíð 9, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 9 við Blönduhlíð.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 8. maí 2009 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. maí 2009.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem tekur mið af athugasemdum skipulagsstjóra.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt ef berst.


254. fundur 2009
Blönduhlíð 9, (fsp) bílskúr
Á fundi skipulagsstjóra 24. apríl 2009 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2009 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 9 við Blönduhlíð. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnastjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. maí 2009.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.

253. fundur 2009
Blönduhlíð 9, (fsp) bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2009 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 9 við Blönduhlíð.
Vísað til umsagnar hjá verkefnastjóra svæðisins.

534. fundur 2009
Blönduhlíð 9, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyfi fengist til að byggja bílskúr á lóð nr. 9 við Blönduhlíð.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.