Boðagrandi 9

Verknúmer : BN039731

534. fundur 2009
Boðagrandi 9, breyta gluggum og innra skipulagi (sjá bn038449)
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í nýsamþykktu erindi, BN038449 dags. 18. júní 2008, einnig til að minnka glugga og breyta litavali úr ljósum marmaramulningi í dökkan íslenskan fjörusalla á leikskólanum á lóð nr. 9 við Boðagranda.
Með erindinu fylgir mæli- og hæðarblað.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.