Kleifarvegur 11

Verknúmer : BN039721

540. fundur 2009
Kleifarvegur 11, bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð nr. 11 við Kleifarveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 29. maí 2009 fylgir erindinu.
Tillagan var grenndarkynnt frá 24. apríl til og með 26. maí 2009. Engar athugasemdir bárust
Stærðir: 37,4 ferm og 129,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 9.941
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


256. fundur 2009
Kleifarvegur 11, bílskúr
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð nr . 11 við Kleifarveg.Stærðir: 37,4 ferm og 129,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 9.941. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. apríl til og með 26. maí 2009. Engar athugasemdir bárust
Samþykkt með vísan til ákvæða um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


252. fundur 2009
Kleifarvegur 11, bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. apríl 2009 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð nr . 11 við Kleifarveg.
Stærðir: 37,4 ferm og 129,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 9.941
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Kleifarvegi 9 og 13 ásamt Vesturbrún 10 og 12.

533. fundur 2009
Kleifarvegur 11, bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr á lóð nr . 11 við Kleifarveg.
Stærðir: 37,4 ferm og 129,1 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 9.941
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.