Síðumúli 3

Verknúmer : BN039712

532. fundur 2009
Síðumúli 3, (fsp) svalir, pallur og skjólgirðing
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja svalahurð á 2. hæð og pall með skjólgirðingu úr perlugleri ofan á þak norðurhliðar atvinnuhúsnæðis á lóð nr. 3 við Síðumúla.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og því fylgi viðeigandi samþykki meðeigenda.