Aðalstræti 6

Verknúmer : BN039706

532. fundur 2009
Aðalstræti 6, breyting inni v/lyftu
Sótt er um leyfi til breytinga á nýsamþykktu erindi, BN039321, m. a. á fyrirkomulagi gistirýma og aðkomu í sal, til að fella út viðbótarlyftu og vegna fleiri minni háttar leiðréttinga á hótelinu á lóð nr. 6 við Aðalstræti.
Einnig er óskað eftir áfangaskiptingu á verkinu.
Erindi fylgir skýrsla frá VSI um brunavarnir á byggingartíma dags. 5. febrúar 2009, yfirlit um hönnunarforsendur lagnakerfa dags. 24. mars 2009, yfirlýsing um lyftuafnot dags. 18. mars 2009 og samþykki vegna breytingar á stigahúsi áritað á uppdrátt ódagsett.
Gjald kr. 7.700

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.