Lækjargata MR

Verknúmer : BN039693

532. fundur 2009
Lækjargata MR, breyting á lóðamörkum
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta mörkum lóðar Menntaskólans í Reykjavík, eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti landupplýsingadeildar dags. 23. mars 2009. Stærð lóðarinnar breytist úr 8350 ferm í 8532 ferm. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í borgarráði 17. apríl 2008 og var birt í B-deild Stjórnartíðinda 2. júní 2008.
Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin verði skráð nr. 7 við Lækjargötu.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðamörk.