Giljasel 1

Verknúmer : BN039674

532. fundur 2009
Giljasel 1, endurnýjun á byggingarleyfi
Sótt er endurnýjun á erindi BN034614 dags. 3. október 2006 þar sem veitt var leyfi til að byggja svalalokun með einföldu gleri í álbrautum með fulla opnunarmöguleika á húsi á lóð nr. 1 við Giljasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. september 2006 fylgir erindinu.
Samþykki húseiganda að Gljúfraseli 2 fylgir erindinu.
Stærð: Svalaskýli 34,7 ferm., 98,6 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.592
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.