Bleikargróf 4 og 6

Verknúmer : BN039631

530. fundur 2009
Bleikargróf 4 og 6, lóðamarkabreyting
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa til að breyta lóðamörkum Bleikargróf 4 og Bleikargróf 6 (6-8) eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti dags. 12. mars 2009. Við breytinguna stækkar Bleikargróf 4 úr 781 fm í 1841 fm og Bleikargróf 6 (6-8) minnkar úr 1308 fm í 748 fm. Óútvísað land í byggð landnr. 218177 minnkar um 500 fm. Deiliskipulagsbreytingin var samþykkt í skipulagsráði 30. maí 2007. Auglýsing um breytt deiliskipulag birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. júní 2007.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreytingin tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.