Seljavegur 2

Verknúmer : BN039597

529. fundur 2009
Seljavegur 2, fellt úr gildi
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 31. júlí 2007 var samþykkt að breyta atvinnuhúsnæði á 5. hæð matshluta 01 í íbúð, bæta við glugga á norðvesturhlið og norðausturhlið ásamt svölum í stað áður snyrtinga á 5. hæð fjöleignahússins á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Þá var bókað að "Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi". Er sú bókun hér með felld úr gildi.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.