Háagerði 11

Verknúmer : BN039583

529. fundur 2009
Háagerði 11, endurnýjun byggingarleyfis hækka þak byggja yfir svalir og ósamþ íbúð
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis nr. BN032197 samþ. 20.12.2005 sem er endurnýjun á byggingarleyfi nr. 17758 frá 27. janúar 2000 þar sem sótt var um "leyfi til að hækka þak á útbyggingu við norðurhlið, byggja yfir svalir á suðurhlið og að sýna ósamþykkta íbúð á efri hæð hússins á lóðinni nr. 11 við Háagerði."
Stækkun: 8,5 ferm., 15,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.